Sex ný fræðslumyndbönd fyrir foreldra eru komin í loftið! Kynntu þér hagnýt ráð og fróðleik um málþroska barna, allt frá orðaforða og tvítyngi yfir í söng, hreyfingu og skjánotkun.
16. október 2026
[Englis below]
Kæru foreldrar,
Okkur langar að deila með ykkur afrakstri verkefnisins „Tungumál til framtíðar – grunnur að læsi“, samstarfsverkefnis Leikskólans Akurs og Leikskólans Vallar, sem unnið var með styrk frá Sprotasjóði.
Í verkefninu voru útbúin sex stutt fræðslumyndbönd fyrir foreldra með hagnýtum upplýsingum og ráðum um málþroska barna. Þar er meðal annars fjallað um orðaforða, tvítyngi, hreyfingu og hreyfifærni, söng og málörvun, snuðnotkun og skjánotkun barna.
Myndböndin eru á íslensku og textuð á ensku og pólsku, svo fræðslan geti nýst sem flestum fjölskyldum.
Við erum mjög stolt af verkefninu og vonum að myndböndin veiti ykkur gagnlegan fróðleik og hugmyndir að því hvernig hægt er að styðja við málþroska barna í daglegu lífi. 💛
👉 Horfið á myndböndin hér:
https://www.reykjanesbaer.is/thjonusta/velferd-og-menntun/born-0-6-ara/foreldrafraedsla
---------------
Dear parents,
We are happy to share the results of “Languages for the Future – A Foundation for Literacy”, a joint project by Akur Preschool and Völlur Preschool, supported by the Icelandic Education Fund (Sprotasjóður).
As part of the project, six short videos were created for parents, offering practical information and advice on children’s language development. The videos cover vocabulary, bilingualism, movement and motor skills, singing and language stimulation, pacifier use, and screen use.
The videos are in Icelandic with English and Polish subtitles, making the information accessible to more families.
We are very proud of the project and hope the videos will provide useful ideas and inspiration for supporting your child’s language development in everyday life. 💛
👉 Watch all six videos here:
https://www.reykjanesbaer.is/thjonusta/velferd-og-menntun/born-0-6-ara/foreldrafraedsla
Hafðu samband ef þú hefur spurningar um leikskólann, Hjallastefnuna eða skráningu.