Leikskólinn er kominn aftur á fullt eftir sumarfrí og mikil gleði í húsi. Fram undan eru fyrstu dagar nýs skólaárs, nýir kjarnar og aðlögun nýrra barna.
14. ágúst 2026
Nýtt leikskólaár er að hefjast á Akri og við erum full tilhlökkunar fyrir haustinu og vetrinum sem fram undan er. Eftir gott sumarfrí opnaði leikskólinn aftur í gær og það var einstaklega gaman að fá börnin aftur í hús og heyra á ný í leik og hlátri á göngunum.
Fyrstu dagarnir fara rólega af stað á meðan börn og kennarar finna aftur taktinn saman. Mörg barnanna eru að setjast að á nýjum kjörnum, kynnast nýjum kennurum og finna sinn stað í nýjum barnahópi. Við leggjum áherslu á að gefa okkur góðan tíma í upphafi, skapa öryggi og gleði og byggja upp sterka hópa fyrir veturinn fram undan.
Á mánudaginn hefst svo aðlögun nýrra barna og þá stækkar Akurhópurinn enn frekar. Við hlökkum mikið til að kynnast nýju börnunum og fjölskyldum þeirra og bjóða þau hjartanlega velkomin til okkar á Akur.
Næstu vikur fara í að koma okkur vel fyrir, kynnast nýjum hópum og venjum og leggja góðan grunn að starfinu í vetur. Það er því nóg um að vera á Akri þessa dagana og virkilega gott að vera komin af stað aftur.
Verið hjartanlega velkomin til leiks og starfs á nýju skólaári! 💛
Hafðu samband ef þú hefur spurningar um leikskólann, Hjallastefnuna eða skráningu.